gummi snickers

hindalundur 

í súbarú legacy að borða hölk ís

matarlitað gums klessist við tennurnar mínar

   og fyrr en ég veit er ég bara að naga pinnann s-l1600

   hann er samt furðulega góður líka

 

 

  

gummi snickers labbar tuskulegur út úr tíu ellefu í úlpu sem gæti verið úr fargó

á bakinu er gulur og blár poki merktur KÁ-A

hann heldur líka á tveimur mexíkóostum

 

26114-mexikoostur-150-g_670x400

 

 

26114-mexikoostur-150-g_670x400

 vinir mínir kölluðu hann alltaf gumma snickers af því að einu sinni fundu þeir hann inn í búningsklefa að gráta og borða snickers á sama tíma, eftir að þeir skutu hann úr í asna

 

hann var líka alltaf fyrstur úr í gúmmí tarzan 

sem var fínt því þá var ég næstfyrstur

 

ég spýti pinnanum út úr mér og hann límist við framrúðuna 

sekk svo ofan í sætið til að þykjast ekki sjá hann

gummi byrjar að horfa í átt að bílnum mínum… eða ekki bílnum mínum

heldur bílnum sem ég sit í

bílnum hennar mömmu

 

KLANK!

 

stál skellur og gler splundrast í mýmarga búta, nokkrum skrefum frá þannig að gummi horfir þangað í staðinn

ryðgaður jepplingur stendur hálfur, eða varla það, út um verslunina… býflugan og blómið

gummi treður mexíkóostunum í vasana og hleypur upp að árekstrinum

eldri maður, bílstjórinn, stígur ringlaður út úr bifreiðinni með hendur á hausnum

hann lítur út fyrir að lykta eins og sex þúsund sígarettur og átta þúsund bjórar

en ómeiddur þannig séð

kannski aðallega í tómu andlegu tjóni

hann stendur á moldini og blómunum í bland við allt glerið 

og nuddar svitann af fituga enninu sínu

gummi snickers spyr hann hvað hafi gerst

ég opna gluggann til að heyra svarið

 

bílstjórinn segir að hann hafi gleymt að setja í handbremsu og að bílinn hafi runnið af stað 

áður en hann vissi var bílinn bara kominn inn í búðina

gamli ökumaðurinn hnoðast saman í skömmustulega kúlu þegar hann rifjar þetta allt saman upp

“alla búðina?” spyr gummi og bendir á litla jeppann inn í versluninni

 

large_2012-09-21_17.51.43gummi ásakar manninn um að hafa framið ómeðvitað innbrot, tekur svo einn mexíkóost úr vasanum og byrjar að borða hann hraustlega

ökumaðurinn stamar og fullyrðir að svo væri ekki og að hann hefði verið að versla vönd fyrir konuna sína

hann hallar sér aftur inn í jepplinginn og dregur út einhæfan blómvönd og hristir hann fyrir framan nefið á gumma snickers eins og hann sé að að sanna eitthvað fyrir honum

lögreglubíll og sjúkrabíll koma inn á bílastæðið 

en ekki með ljósin á

 

ég fikta í takkanum á hurðinni og læt bílrúðuna stökkva upp og síga niður til skiptist 

seinast þegar ég gerði þetta 

var ég með puttann á milli. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elín Elísabet Einarsdóttir

Þvílíkur rússíbani. Myndirnar æðislegar

Elín Elísabet Einarsdóttir, 13.9.2023 kl. 18:44

2 Smámynd: Katla Björk Gunnarsdóttir

Namm! Núna langar mig í mexíkóostkiss

Katla Björk Gunnarsdóttir, 14.9.2023 kl. 08:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband